Paulinho, fyrrum leikmaður Tottenham, er með tilboð á borðinu frá Katalóníustórveldinu Barcelona. Hans bíður erfið ákvörðun.
Paulinho elskar lífið í Kína, en þar hefur hann spilað með Guangzhou Evergrande frá árinu 2015. Hann hefur verið að spila gríðarlega vel og hefur vakið áhuga frá stærstu liðum Evrópu, þar á meðal frá Barcelona og Bayern München.

Hann staðfestir tilboð frá Barcelona.
„Það er búið að ræða við umboðsmann minn," sagði Paulinho í viðtali við Globo Esporte. „Það er tilboð á borðinu og við erum að ræða saman. En í dag er ég á mjög góðum stað á lífinu og á ferli mínum," sagði hann enn fremur.
„Þetta er mjög erfið ákvörðun."
Athugasemdir