mán 26. júní 2017 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pogba: Griezmann má fara til Manchester City
Mynd: Getty Images
Paul Pogba segir að það sé allt í lagi að Antoine Griezmann, liðsfélagi sinn hjá franska landsliðinu, fari til Manchester City,.

Griezmann var sterklega orðaður við Mancheseter United, en hann ákvað í staðinn að gera nýjan samning við Atletico Madrid.

Pogba, sem er leikmaður Man Utd, myndi ekki erfa það við vin sinn, Griezmann ef hann færi til nágrannana í City.

„Griezmann? Ég vil bara að hann sé ánægður. Ef það er hjá Atletico, eða Man City, ég mun höndla það. Hann er einn besti leikmaður heims," sagði Pogba við Telefoot.

„Ef Zlatan er ánæðgur annars staðar, þá er ég ánægður fyrir hans hönd," sagði Pogba, en hann og Zlatan voru liðsfélagar á síðasta tímabili. Zlatan fékk ekki nýjan samning hjá United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner