Smelltu hér til að hlusta á X-ið FM 97,7 í beinni
FH og Stjarnan unnu flotta sigra í Evrópudeildinni í vikunni en tveir leikmenn fyrrnefnda liðsins verða gestir í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag. Þátturinn er alla laugardaga milli 12 og 14 á X-inu FM 97,7.

Markvörðurinn Róbert Örn Óskarsson og varnarmaðurinn Pétur Viðarsson mæta í heimsókn í gasklefann og ræða boltann.
Sérfræðingurinn Guðmundur Steinarsson verður á línunni en heil umferð verður í Pepsi-deildinni á sunnudag og spáir Gummi í spilin fyrir þá leiki.
Þá verður hringt til Noregs og spjallað við Sverri Inga Ingason, varnarmann Viking í Stafangri.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir