lau 26. júlí 2014 07:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gino Peruzzi ekki á leið til Arsenal
Gino Peruzzi.
Gino Peruzzi.
Mynd: Getty Images
Gino Peruzzi, varnarmaður Catania, segist ekki vera á leið til Arsenal eins og orðrómar hafa verið um.

Arsenal voru sagðir hafa áhuga á Peruzzi en þeir hafa nú þegar fengið Mathieu Debuchy frá Newcastle í stað Bacary Sagna sem fór til Manchester City.

En Peruzzi segir svo ekki vera og vill einbeita sér að leiktíðinni með Catania.

Catania féllu úr Seria A á síðustu leiktíð, eftir að hafa lent í 18. sæti og vill Peruzzi ólmur hjálpa liðinu að komast aftur í deild þeirra bestu.

,,Ég heyrði um áhuga Arsenal en félagið hefur ekki sagt mér neitt."

,,Ég er rólegur og ég held ég verði hérna ennþá. Ég er bara að einbeita mér að Catania og ég vill hjálpa liðinu að komast aftur í Seria A," sagði Peruzzi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner