Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. júlí 2016 11:10
Magnús Már Einarsson
Blikar steggjuðu leikmann sem er ekki að fara að gifta sig
Gísli Eyjólfsson var steggjaður, þó hann sé ekki að fara að gifta sig!
Gísli Eyjólfsson var steggjaður, þó hann sé ekki að fara að gifta sig!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikmenn karlaliðs Breiðabliks fóru nýstárlegar leiðir þegar þeir héldu skemmtidag í gær.

Tíu dagar eru á milli leikja í Pepsi-deildinni núna og eftir 2-0 sigur gegn Víkingi Ólafsvík á sunnudag þá ákváðu Blikar að þjappa hópnum saman og taka skemmtidag í gær.

Blikar ákváðu að draga eitt nafn úr leikmannahópnum og hann var steggjaður yfir daginn, þrátt fyrir að engin gifting sé framundan.

Miðjumaðurinn Gísli Eyjólfsson var dreginn út og hann var steggjaður, þrátt fyrir að hann sé einhleypur og ekki á leið að gifta sig.

Blikar létu eins og Gísli væri að fara að giftast stúlku sem heitir Lóa.

Athæfið fékk fína umfjöllun á samfélagsmiðlum eins og sjá má hér að neðan.










Athugasemdir
banner
banner
banner
banner