Fanndís Friðriksdóttir, sóknarmaður Breiðabliks, var ánægð eftir 2-0 sigur liðsins gegn KR í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Hún hefði þó viljað sjá Blika byrja leikinn af meiri krafti, en staðan var 0-0 í hálfleik. Þrátt fyrir það óttaðist hún ekki að liðinu mistækist að taka stigin þrjú.
Hún hefði þó viljað sjá Blika byrja leikinn af meiri krafti, en staðan var 0-0 í hálfleik. Þrátt fyrir það óttaðist hún ekki að liðinu mistækist að taka stigin þrjú.
Lestu um leikinn: KR 0 - 2 Breiðablik
„Mér fannst við hefðum getað byrjað leikinn aðeins betur, sérstaklega fyrri hálfleikinn, það vantaði aðeins kraft í okkur. En þetta var aldrei hætta, ég held þær hafi ekki átt eitt skot á markið nema í restina,"
„Þær vörðust ágætlega en við fengum alveg færi til þess að vera komnar yfir í hálfleik, en það skiptir engu máli, við unnum. Við vorum að skapa færi en þurftum að klára þau betur."
„Maður getur orðið pirraður þegar maður skorar ekki, sérstaklega á móti svona liði sem reyndi ekki mikið að sækja. Þær reyndu ekki að sækja í stöðunni 1-0, þær gáfu aðeins í þegar staðan var orðin 2-0 en þetta var aldrei hætta."
Fanndís býst við spennandi toppbaráttu til síðasta dags, en Breiðablik er einungis stigi frá toppliði Stjörnunnar.
„Það munar bara einu stigi á okkur og Stjörnunni þannig þetta verður barátta fram í rauðan dauðann," sagði Fanndís.
Athugasemdir