Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 26. júlí 2016 19:28
Alexander Freyr Tamimi
Higuain í Juventus (Staðfest)
Higuain er genginn í raðir Juventus.
Higuain er genginn í raðir Juventus.
Mynd: Getty Images
Juventus hefur staðfest á heimasíðu sinni að félagið sé búið að kaupa Gonzalo Higuain fyrir 90 milljónir evra frá Napoli. Juventus virkjaði klásúlu í samningi Higuain til að fá Argentínumanninn í sínar raðir.

Higuain raðaði inn mörkum fyrir Napoli á síðustu árum og hefur alls skorað 191 mark í 329 leikjum með Napoli, Real Madrid og River Plate. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk 17 ára gamall.

Higuain bætist í hóp samlanda sinna Carlos Tevez og Paulo Dybala sem klæðst hafa treyju Juventus.

Forseti Napoli hafði sagt að Higuain væri ekkiu til sölu en gat ekkert gert er Juventus virkjaði kaupklásúlu hans. Varð framherjinn í leiðinni einn dýrasti leikmaður sögunnar og langdýrasti leikmaðurinn í sögu Seríu A.
Athugasemdir
banner
banner
banner