Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 26. júlí 2016 16:16
Magnús Már Einarsson
Iain Williamson klárar tímabilið með ÍA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Iain WIlliamson verður á láni frá ÍA frá Víkingi R. út tímabilið en þetta staðfesti Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Skagamanna, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Iain kom til ÍA á láni í vor og hefur verið fastamaður í liðinu í sumar.

„Á Víkingur R að kalla Williamson til baka, eru í baráttu við ÍA um Evrópu #pepsi365" skrifaði Sævar Pétursson á Twitter í gær og velti þeim möguleika fyrir sér að Víkingur myndi kalla Iain til baka.

Að sögn Gunnlaugs átti Víkingur möguleika á að kalla Iain til baka úr láni.

Félögin hafa hins vegar náð samkomulagi um að Iain klári tímabilið með ÍA.

Iain hefur spilað á Íslandi frá því árið 2012 en hann lék áður með Grindavík og Val.
Athugasemdir
banner
banner
banner