Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 26. júlí 2016 20:30
Arnar Helgi Magnússon
Ian Jeffs: Setjumst niður og ræðum Þjóðhátíð á morgun
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ian Jeffs þjálfari ÍBV var kampakátur eftir sterkan útisigur á Selfossi í Pepsideildinni í kvöld. Boðið var uppá markasúpu og endaði leikurinn með 3-5 sigri ÍBV

„Við fórum í framlenginu gegn ÞÓR/KA (í síðasta leik) þannig ég var alveg viss um að leikmennirnir yrðu þreyttir í seinni hálfleik. Planið okkar í dag var að byrja með krafti og skora í seinni hálfleik, það tókst."

„Þetta var solid karakter sigur í dag, ég var mjög ánægður með þessi 3 stig. Boltinn var að ganga hratt á milli leikmanna og spilamennskan var mjög fín í fyrri hálfleik."

Ian segir að það hafi verið óþægilegt þegar Selfyssingar skoruðu 2 mörk á stuttum tíma.

„Maður er alltaf hræddur við það að fá á sig 2 mörk á stuttum tíma. Ég sá að leikmennirnir voru mjög þreyttir en þetta sýnir að leikmennirnir eru með sterkan karakter og það gekk vel síðustu 20 að liggja aðeins aftarlega og leyfa þeim að koma upp með boltann."

En fá leikmenn að fara á þjóðhátíð?

„Já, ég get ekki bannað það en við setjumst niður á morgun og ræðum þetta aðeins."
Athugasemdir
banner
banner