Fotbolti.net
26.07.17 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brooke Hendrix í Fylki (Staðfest)

Fylkir styrkir sig.

Fylkir styrkir sig.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Hertz
Fylkir hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Pepsi-deild kvenna.

Hin bandaríska Brooke Hendrix hefur samið við félagið, en hún spilaði síðast með FC Staad í Sviss.

Þar áður var hún í háskóla í Bandaríkjunum að gera það gott. Hún spilaði með Southern Miss-háskólanum.
Hún spilar framarlega á vellinum.

Fylkir er í fallbaráttu í Pepsi-deild kvenna og því gríðarlega mikilvægt að styrkja sig fyrir leikina sem eru framundan.

Pepsi-kvenna hefst eftir EM-frí þann 9. ágúst.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.