„Við fáum á okkur þrjú mörk sem við eigum að koma í veg fyrir," sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, eftir 3-0 tap gegn Austurríki á EM í kvöld.
„Það var einbeitingarleysi í varnarleiknum hjá okkur og við verðum að hafa þetta meira á hreinu."
Þetta var lokaleikur Íslands á mótinu, en liðið fer heim af mótinu með þrjú töp á á bakinu.
„Það var einbeitingarleysi í varnarleiknum hjá okkur og við verðum að hafa þetta meira á hreinu."
Þetta var lokaleikur Íslands á mótinu, en liðið fer heim af mótinu með þrjú töp á á bakinu.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 3 Austurríki U20
„Við gerðum okkar besta, reyndum okkar besta, en þetta gjörsamlega féll ekki með okkur."
„Þetta fór ekki eins og við vildum. Við vorum búnar að undirbúa okkur ótrúlega vel, búnar að leggja ótrúlega mikla vinnu í þetta. Auðvitað er ótrúlega svekkjandi að enda þetta mót svona og ógeðslega sárt. Það er margt sem við getum bætt, en það er líka margt sem við getum frá þessu móti."
„Þetta fer í reynslubankann. Maður setur svona mót til hliðar og maður byrjar upp á nýtt."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir