Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. ágúst 2014 15:47
Magnús Már Einarsson
Di Maria búinn að standast læknisskoðun
Mynd: Getty Images
Angel di Maria hefur staðist læknisskoðun hjá Manchester United.

Di Maria hefur einnig náð samkomulagi við United um kaup og kjör og hann á nú einungis eftir að skrifa undir samninginn hjá félaginu.

Di Maria kemur frá Real Madrid á 59,7 milljónir punda.

Hann verður þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu enska boltans en fyrra metið var þegar Chelsea borgaði 50 milljónir punda fyrir Fernando Torres árið 2011.

Di Maria er 26 ára gamall Argentínumaður en hann mun fá sjöuna hjá Manchester United og þar með feta í fótspor David Beckham, Eric Cantona, Cristiano Ronaldo, George Best og Bryan Robson.
Athugasemdir
banner
banner