Angel di Maria er mættur á Carrington, æfingasvæði Manchester United, til að ganga frá félagaskiptum til félagsins.
Di Maria mun fara í læknisskoðun hjá Manchester United í dag áður en hann skrifar undir hjá félaginu.
Di Maria kemur frá Real Madid á 59,7 milljónir punda.
Hann verður þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu enska boltans en fyrra metið var þegar Chelsea borgaði 50 milljónir punda fyrir Fernando Torres árið 2011.

Di Maria er 26 ára gamall Argentínumaður en hann mun fá sjöuna hjá Manchester United og þar með feta í fótspor David Beckham, Eric Cantona, Cristiano Ronaldo, George Best og Bryan Robson.
Athugasemdir