Ísfötuáskorunin heldur áfram um netheima eins og eldur um sinu. Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson fékk áskorun frá Guðjóni Baldvinssyni.
Hannes tók þessari áskorun að sjálfsögðu og styrkti MND-félagið í leiðinni eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.
Hannes tók þessari áskorun að sjálfsögðu og styrkti MND-félagið í leiðinni eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.
Hannes sendi áskorunina áfram og voru fyrrum þjálfarar hans, Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari, og Þorvaldur Örlygsson þar á meðal.
Eiður Smári Guðjohnsen tók ísfötuáskoruninni í gær en hann skoraði meðal annars á Gumma Ben og Lars Lagerback landsliðsþjálfara.
Athugasemdir