„Ég er himinn lifandi, mér finnst þessi 3 stig alveg jafn kærkomin og önnur 3 stig. Það er gott að vinna á heimavelli, skora og fá ekkert á sig þannig að ég mjög ánægður.“ Sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson eftir 1-0 sigur gegn ÍA á Þórsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 0 ÍA
„Þetta var hörkuleikur. Þær komu hingað til að berjast og þær hlupu mikið og mér fannst þær spila boltanum vel á milli sín og þær voru að reyna í 90 mínútur. Það er allt kredit á skagaliðið í dag. Mér fannst þær gera góða ferð þótt þær fengu ekkert uppúr því“
Leiknum var seinkað um 30 mínútur vegna þess að Roxane Barker markvörður Þór/KA var enn á leið úr landsliðsferðalagi með Suður-Afríku. Hún lenti á Akureyri 20 mínútum fyrir leik. Aðspurður um þetta hafði Jóhann þetta að segja:
„Þetta var ákvörðum sem var tekinn að fara þessa leið vegna þess að það klúðraðist eitthvað hjá hennar landsliði að koma henni heim í tæka tíð. Við tókum þá ákvörðum að hún skyldi hvíla sig á ferðalaginu. Þetta er lang ferðalag og hún kom og stóð sig frábærlega. Stelpan sem er á bekknum hún var klár að byrja, búinn að hita upp og ég hefði alveg treyst henni til að byrja þennan leik.“
Nánar er rætt við Jóhann í spilaranum hér fyrir ofan
Athugasemdir