Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 26. ágúst 2014 16:30
Magnús Már Einarsson
Maðurinn í gráu buxunum á leið til Fulham
Gabor Kiraly.
Gabor Kiraly.
Mynd: Getty Images
Ungverski markvörðurinn Gabor Kiraly er á leið til Fulham.

Kiraly er 38 ára gamall en hann hefur leikið með 1860 Munchen frá árinu 2009.

Kiraly er þekktur fyrir að spila alltaf í gráum buxum í markinu en hann hefur áður leikið með Crystal Palace og Aston Villa á Englandi sem og Hertha Berlin í Þýskalandi.

Fulham hefur byrjað tímabilið skelfilega í ensku Championship deildinni eftir fall úr úrvalsdeildinni síðastliðið vor.

Liðið tapaði 5-1 gegn Derby um helgina og sumir stuðningsmenn Fulham vilja að knattspyrnustjórinn Felix Magath taki pokann sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner