Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 26. ágúst 2014 15:30
Magnús Már Einarsson
Podolski fer ekki frá Arsenal
Lukas Podolski.
Lukas Podolski.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Lukas Podolski verði ekki seldur frá félaginu í sumar.

Hinn 29 ára gamli Podolski hefur verið orðaður við bæði Juventus og Galatasaray að undanförnu.

Wenger segir að Podolski muni ekki róa á önnur mið en hann verður í leikmannahópnum gegn Besiktas í Meistaradeildinni annað kvöld.

,,Podolski er í hópnum á miðvikudag og hann verður áfram hjá okkur," sagði Wenger.

Podolski hefur ekkert komið við sögu hjá Arsenal hingað til á tímabilinu en Wenger vill ekki selja hann þar sem Olivier Giroud verður frá keppni á næstunni vegna meiðsla á ökkla.
Athugasemdir
banner
banner