Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 26. ágúst 2014 20:56
Gabríel Sighvatsson
Theodór Sveinjóns: Eins og við værum í Herjólfi
Theodór Sveinjónsson.
Theodór Sveinjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV mætti Aftureldingu í dag í 14. umferð Pepsi-deildar kvenna og höfðu þar stórsigur 8-0 þar sem mörkin fylgdu hverju á fætur öðru en þetta var stærsti sigur ÍBV í deildinni á þessu ári og sá stærsti á Aftureldingu þrátt fyrir nokkra aðra stóra í gegnum tíðina.

Lestu um leikinn: ÍBV 8 -  0 Afturelding

,,Það er voðalega lítið hægt að segja við svona, nema það að þetta var mjög slappt hjá okkur og við vorum virkilega lélegar og áttum ekkert skilið úr þessum leik," sagði Theodór Seinjónsson, þjálfari Aftureldingar eftir leik.

,,Við bara vorum ekkert á svæðinu. Það er eins og við séum ennþá í Herjólfi að horfa á bíó og ef við ætlum að láta svona getum við alveg eins farið niður strax,"

,,Við verðum bara að gera betur og munum gera það í næsta leik, við þurfum að rífa okkur upp af rassgatinu fyrir næsta leik, mótið er ekki búið og við eigum enn möguleika á að halda okkur uppi," sagði Theodór að lokum en aðeins tvö stig skilja FH og Aftureldingu að í tvö næstneðstu sætunum.
Athugasemdir
banner