Sóknarmaðurinn Takuma Asano hefur verið lánaður frá Arsenal til Stuttgart út tímabilið. Þessi 21 árs leikmaður kom til Arsenal frá Sanfrecce Hiroshima í júlí.
Hann lék vel með Japan á Ólympíuleikunum þar sem hann skoraði tvö mörk í þremur leikjum.
Hann lék vel með Japan á Ólympíuleikunum þar sem hann skoraði tvö mörk í þremur leikjum.
Asano vakti athygli margra félaga með frammistöðu sinni í J-deildinni heima í Japan þar sem hann vann tvo deildarmeistaratitla og var valinn nýliði ársins 2015.
Lánssamningurinn til Stuttgart gerir það að verkum að hann mun fá nóg af spilatíma núna.
Athugasemdir