Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. ágúst 2016 19:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Raggi Sig: Lífið er svo sannarlega að gefa
Ragnar er ánægður með það að vera kominn til Fulham
Ragnar er ánægður með það að vera kominn til Fulham
Mynd: Aðsend
Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson var í vikunni keyptur til Fulham í ensku Championship-deildinni.

Ragnar krotaði undir tveggja ára samning en Fulham á möguleika á að framlengja þann samning um eitt ár til viðbótar.

Ragnar sló í gegn á EM í Frakklandi í sumar og var í kjölfarið eftirsóttur af mörgum félögum.

Hann ákvað að velja Fulham og það er ákvörðun sem hann virðist vera mjög sáttur með.

„Búinn að skrifa undir hjá Fulham Fc, bý í Lundúnum núna, treyja númer 17 á lausu.. Lífið er svo sannarlega að gefa," skrifaði Ragnar á Twitter í dag.

Tístið má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner