Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 26. ágúst 2016 18:30
Magnús Már Einarsson
Stuart Taylor til Southampton - Cedric framlengir
Stuart Taylor í leik fyrr á ferlinum.
Stuart Taylor í leik fyrr á ferlinum.
Mynd: Getty Images
Southampton hefur gert eins árs samning við markvörðinn reynda Stuart Taylor.

Taylor hefur verið án félags í eitt ár en hann var síðast hjá Leeds tímabilið 2014/2015.

Fyrr á ferlinum spilaði hinn 35 ára gamli Taylor bæði með Manchester City og Arsenal.

Portúgalski hægri bakvörðurinn Cedric Soares hefur einnig skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Southampton.

Soares kom til Southampton frá Sporting Lisabon í fyrra og hefur staðið sig vel síðan þá.
Athugasemdir
banner
banner