Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. september 2016 18:11
Magnús Már Einarsson
Leikmenn HK ætla að taka afleiðingum gerða sinna
Úr leik hjá HK í sumar.
Úr leik hjá HK í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK hefur birta aðra yfirlýsingu á heimasíðu félagsins eftir að 433.is birti myndband af Bjarna Gunnarssyni, leikmanni HK, þar sem hann pissar á Breiðabliksfána fyrir utan Fagralund.

HK sendi fyrst frá sér yfirlýsingu vegna málsins í gær. Í annarri yfirlýsingu í dag kemur fram að stjórn knattspyrnudeildar hafi móttekið afsökunarbeiðni frá leikmönnum vegna málsins.

Þar kemur fram að leikmenn HK segjast taka sameiginlega ábyrgð á atvikinu, þeir muni draga af því lærdóm og taka afleiðingum gerða sinna.

Atvikið sem um ræðir er litið alvarlegum augum og hefur því verið vísað til umfjöllunar aganefndar í samræmi við lög HK.

Yfirlýsing HK:
Stjórn knattspyrnudeildar HK hefur móttekið afsökunarbeiðni frá leikmönnum meistaraflokks félagsins vegna ósæmilegrar meðferðar á fána Breiðabliks fyrir utan Fagralund síðastliðið laugardagskvöld.

Í afsökunarbeiðni leikmanna kemur m.a. fram að leikmenn harmi atvikið og biðjist innilega afsökunar á því. Þá kemur fram að leikmennirnir telji að hegðun af þessum toga sé ekki til eftirbreytni og samræmist hvorki siðareglum né íþróttamannlegri hegðun. Leikmennirnir segjast taka sameiginlega ábyrgð á atvikinu, þeir muni draga af því lærdóm og taka afleiðingum gerða sinna.

Stjórn knattspyrnudeildar HK ítrekar hér með fyrir hönd félagsins afsökunarbeiðni til allra Blika sem birt var í gær og vonast til þess að geta átt áfram gott og uppbyggilegt samstarf við Breiðablik, svo sem verið hefur.

Atvikið sem um ræðir er litið alvarlegum augum og hefur því verið vísað til umfjöllunar aganefndar í samræmi við lög HK.

Virðingarfyllst,

Stjórn knattspyrnudeildar HK​

Sjá einnig:
HK-ingar pissuðu á Blikafána - HK biðst afsökunar
Myndband birt af leikmanni HK pissa á Blikafána
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner