Heimild: 433.is
Vefsíðan 433.is hefur birt myndband af Bjarna Gunnarssyni, leikmanni HK, þar sem hann pissar á Breiðabliksfána fyrir utan Fagralund.
Sjá einnig:
HK-ingar pissuðu á Blikafána - HK biðst afsökunar
Málið hefur mikið verið í umræðunni eftir að 433 greindi frá því í gær að leikmenn HK hafi migið á umræddan fána á lokahófi félagsins. Hófið var haldið kvöldið eftir að HK tapaði 7-2 fyrir Leikni Fáskrúðsfirði og endaði í níunda sæti Inkasso-deildarinnar.
HK sendi frá sér tilkynningu þar sem félagið baðst afsökunar á því sem átti sér stað.
Fótbolti.net hafði samband við Bjarna Gunnarsson sem sagðist ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu en hann gæti verið tilbúinn í það síðar.
Smelltu hér til að sjá umrædda frétt á 433.is
Athugasemdir