Jesus Guerrero Suarez hefur skrifað undir nýjan samning við Leikni Fáskrúðsfirði.
Jesus er spænskur miðjumaður en hann kom til Leiknis fyrir þetta tímabil.
Hann skoraði þrjú mörk í tuttugu leikjum í Inkasso-deildinni í sumar.
Jesus er spænskur miðjumaður en hann kom til Leiknis fyrir þetta tímabil.
Hann skoraði þrjú mörk í tuttugu leikjum í Inkasso-deildinni í sumar.
„Þá er undirbúningur Inkasso17 hafinn. Jesus Suarez, einn albesti leikmaður Inkasso16, búinn að skrifa undir samning fyrir næsta tímabil. Til hamingju Leiknir og Suarez!" segir á Facebook síðu Leiknis.
Leiknir bjargaði sér frá falli úr Inkasso-deildinni á magnaðan hátt í lokaumferðinni um helgina.
Liðið sigraði HK 7-2 á útivelli á meðan Huginn tapaði 4-1 gegn Selfossi og féll um leið á markatölu.
Athugasemdir