Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mán 26. september 2016 19:16
Arnar Geir Halldórsson
Svíþjóð: Enn skorar Elías Már
Sjóðheitur
Sjóðheitur
Mynd: Getty Images
Fimm leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld og voru fjórir Íslendingar í eldlínunni.

Ekkert fær stöðvað Elías Má Ómarsson þessa dagana en hann var á skotskónum þriðja leikinn í röð þegar Gautaborg vann 2-0 sigur á Östersund. Elías Már er á láni hjá Gautaborg frá Valerenga og hefur staðið sig afar vel síðan hann kom til félagsins.

Gamla brýnið Hjálmar Jónsson sat allan tímann á varamannabekk Gautaborgar sem er í fjórða sæti deildarinnar.

Ögmundur Kristinsson, Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason léku allan leikinn þegar Hammarby vann Falkenbergs.

Úrslit kvöldsins

Falkenbergs 0-2 Hammarby
Sundsvall 0-0 Hacken
Gautaborg 2-0 Östersund
Örebro 2-2 Gefle
Norrköping 1-3 Djurgarden
Athugasemdir
banner
banner
banner