Tottenham verður án fimm leikmanna á morgun þegar liðið mætir CSKA Moskvu á útivelli í mikilvægum Meistaradeildarleik.
Moussa Sissoko, Harry Kane og Eric Dier eru meðal þeirra sem eru fjarri góðu gamni. Þá ferðuðust hvorki Mousa Dembele né Danny Rose með í leikinn.
Moussa Sissoko, Harry Kane og Eric Dier eru meðal þeirra sem eru fjarri góðu gamni. Þá ferðuðust hvorki Mousa Dembele né Danny Rose með í leikinn.
Sissoko fékk höfuðhögg í sigurleiknum gegn Middlesbrough á laugardaginn, Kane er meiddur á ökkla og þá eru Dier, Dembele og Rose allir að glíma við meiðsli aftan í læri.
Spurs tapaði gegn Mónakó í fyrsta leik E-riðils á Wembley. Eftir leikinn í Moskvu á liðið leik gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Athugasemdir