Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 26. október 2016 21:26
Jóhann Ingi Hafþórsson
Deildabikarinn: Liverpool fær heimsókn frá Leeds
Liverpool mætir Leeds
Liverpool mætir Leeds
Mynd: Getty Images
Búið er að draga í 8-liða úrslit enska deildabikarsins en 16-liða úrslitin kláruðust í kvöld.

Arsenal fær Southampton í heimsókn á Emirates völlinn á meðan Hull og Newcastle mætast.

Manchester United sló út Mancester City í kvöld og fær að launum heimaleik gegn West Ham sem gerði sér lítið fyrir og sló út Chelsea.

Liverpool fær svo heimsókn frá gamla stórveldinu í Leeds United en Leeds er í Championship deildinni sem stendur. Liðin mættust í þessari keppni fyrir sex árum síðan en þá vann Liverpool, 1-0.

Arsenal - Southampton

Hull - Newcastle

Manchester United - West Ham

Liverpool - Leeds

Leikið verður 29. og 30. nóvember.

Athugasemdir
banner
banner
banner