Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. október 2016 14:00
Magnús Már Einarsson
Hreinn Ingi framlengir við Þrótt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Hreinn Ingi Örnólfsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnufélagið Þrótt. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Hinn 23 ára gamli Hreinn Ingi á að baki 66 leiki fyrir Þrótt og hefur skorað í þeim 2 mörk.

„Hreinn Ingi spilaði 14 leiki í Pepsi-deildinni á nýliðnu tímabili og er augljóslega mikilvægur hlekkur í hópnum okkar. Hann hefur farið mjög vaxandi sem miðvörður undanfarin ár og ég vænti þess að hann haldi áfram að þroskast og bæta sig næsta sumar. Við hugum nú að grunnviðum félagsins og byggjum upp til framtíðar,“ segir Gregg Oliver Ryder, þjálfari Þróttar.

„Hreinn Ingi hefur verið hjá okkur frá 14 ára aldri og er því löngu orðinn heimamaður hérna í hjartanu í Reykjavík. Við brosum út að eyrum í Laugardalnum í hvert skipti sem við fáum tækifæri til að tryggja okkur þjónustu heimamanna til framtíðar. Þetta er afar ánægjulegt,“ segir Ótthar Sólberg Edvardsson, framkvæmdastjóri Þróttar.
Athugasemdir
banner
banner