Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. október 2016 19:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Pedro nálægt því að fara aftur til Barcelona
Pedro
Pedro
Mynd: Getty Images
Pedro, leikmaður Chelsea, var nálægt því að ganga til liðs við sitt gamla félag, Barcelona í sumar.

Hann fór til Chelsea frá Barcelona á 21 milljón punda í ágúst og spilaði hann sinn 50. leik gegn Manchester United um helgina en hann skoraði fyrsta mark leiksins í 4-0 sigri.

Pedro er búinn að vera þrisvar í byrjunarliði Chelsea í deildinni á leiktíðinni og hefur staðið sig vel. Hann hefur nú viðurkennt að hafa íhugað að snúa aftur til Barcelona þar sem framtíð hans hjá Chelsea var óljós.

„Ég talaði við forseta Barcelona og ég virtist nálægt því að fara aftur til þeirra. Það er augljóst að ég væri til í að snúa aftur einn daginn. Þetta er frábært félag og stuðningsmenn þeirra kunna að meta mig," sagði Pedro í samtali við RAC-1 útvarpsstöðina.

„Mig langar að enda ferilinn hjá Barcelona," bætti hann svo við.
Athugasemdir
banner
banner