Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. október 2016 20:23
Jóhann Ingi Hafþórsson
Sviss: Rúnar Már og félagar steinláu í bikarkeppninni
Rúnar Már
Rúnar Már
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar hjá Grasshopper eru úr leik í svissnesku úrvalsdeildinni eftir 5-0 tap gegn Young Boys.

Leikurinn var í 16-liða úrslitum keppninnar en Rúnari og félögum tókst því ekki að komast í 8-liða úrslit eins og Birkir Bjarnason og félagar í Basel gerðu fyrr í dag.

Rúnar var tekinn af velli í seinni hálfleik en hann lék rúman klukkutíma.

Þetta var þriðji tapleikur Grasshopper í röð en þeir töpuðu deildarleik gegn Young Boys í síðasta deildarleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner