Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. nóvember 2014 14:00
Elvar Geir Magnússon
Alessandro Nesta tekur skóna af hillunni
Nesta spilaði 224 leiki með AC Milan.
Nesta spilaði 224 leiki með AC Milan.
Mynd: Getty Images
Stóru nöfnin streyma til Indlands. Ítalska goðsögnin Alessandro Nesta hefur tekið skóna úr hillunni og mun klára tímabilið með Chennaiyin FC í indversku deildinni.

Nesta er talinn meðal bestu varnarmanna í sögu Ítalíu sem er skiljanlegt enda á hann fullan verðlaunaskáp.

Hann vann HM, þrjá ítalska meistaratitla, þrjá bikarmeistaratitla, HM félagsliða og Meistaradeildina tvívegis.

Nesta er 38 ára en Chennaiyin er á toppi deildarinnar. Fyrsti leikur Ítalans verður gegn Goa.
Athugasemdir
banner
banner