Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City á Englandi, var í skýjunum með 3-2 sigur liðsins á Bayern München í Meistaradeild Evrópu í gær.
Sergio Aguero skoraði öll mörk Manchester City í gær en hann gerði sigurmarkið undir lok leiksins eftir að liðið hafði lent 1-2 undir.
,,Þetta var furðulegur leikur. Þeir voru mjög öflugir og spiluðu frábærlega með einungis tíu menn á vellinum en við gerðum það sem við þurftum að gera til þess að vinna þetta lið í gær," sagði Kompany.
,,Ef þú vilt afreka eitthvað þá þarftu sérstaka leikmenn í sérstu formi. Sergio Aguero er okkar sérstaki leikmaður og þegar hann er í þessu formi þá er allt mögulegt," sagði hann að lokum.
Athugasemdir