Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 26. nóvember 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lewandowski: Þetta er svekkjandi
Robert Lewandowski
Robert Lewandowski
Mynd: Getty Images
Robert Lewandowski, framherji Bayern München í Þýskalandi, var svekktur eftir 3-2 tap liðsins gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu í gær.

Sergio Aguero kom Man City yfir úr vítaspyrnu er Mehdi Benatia braut á honum innan teigs og um leið fékk að líta rauða spjaldið. Xabi Alonso jafnaði svo metin áður en Lewandowski kom Bayern yfr.

Aguero reyndist hinsvegar of stór biti fyrir Bayern og kláraði leikinn með tveimur mörkum en Lewandowski var eðlilega svekktur.

,,Við gerðum tvö mistök á síðustu mínútunum og fengum á okkur tvö mörk. Það er svekkjandi því við vorum mjög öflugir með aðeins tíu menn á vellinum en okkur var ekki verðlaunað fyrir þá frammistöðu," sagði Lewandowski.
Athugasemdir
banner
banner