Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. nóvember 2014 19:55
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Birkir Már og félagar fallnir
Þetta var síðasti leikur Birkis með Brann enda á leið til Hammarby í Svíþjóð.
Þetta var síðasti leikur Birkis með Brann enda á leið til Hammarby í Svíþjóð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mjondalen 3 - 0 Brann (4-1 samanlagt)
1-0 Sanel Kapidzic ('27)
2-0 Vamouti Diomande ('64)
3-0 Sanel Kapidzic ('67)

Birkir Már Sævarsson og félagar í norska liðinu SK Brann eru fallnir úr efstu deild eftir tap gegn Mjondalen í umspilsleik.

Brann endaði í umspilssæti efstu deildarinnar og átti því að keppa við þriðja sæti næstefstu deildar, Mjondalen.

Fyrri leikurinn var á heimavelli Brann og lauk með 1-1 jafntefli en Mjondalen vann síðari leikinn í kvöld 3-0.

Birkir var í byrjunarliði Brann í dag og gat lítið gert í þriggja marka sigri heimamanna þar sem Sanel Kapidzic gerði tvö mörk og Vamouti Diomande eitt.

Þetta var líklega síðasti leikur Birkis fyrir Brann en hann er sagður á leið til Hammarby í Svíþjóð.
Athugasemdir
banner
banner