Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 26. nóvember 2014 15:30
Magnús Már Einarsson
Riise náði að krækja í treyju Messi
Mynd: Twitter
John Arne Riise var ónotaður varamaður þegar APOEL frá Kýpur tapaði 4-0 gegn Barcelona í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Lionel Messi skoraði þrennu í leiknum og sló um leið markametið í Meistaradeildinni.

Riise náði að fá treyju Messi að gjöf eftir leik.

,,Treyjan var frekar stór sem var fyndið," sagði Riise kátur með treyjuna eftir leik.

,,Ég ræddi við hann í hálfleik og bað hann kurteislega um treyjuna."
Athugasemdir
banner
banner