Vinir okkar á FourFourTwo gerðu ítarlega rannsókn á því hvaða erkifjendaslagir séu þeir bestu í heiminum. Tekið var mið af sögunni, hversu þekktir leikmenn eru, andrúmsloftinu, stuðningsmönnum, spennu, dramatík og vinsældum í heiminum. Hér að neðan má sjá topp tíu:
10. Al-Ahly - Zamalek (Egyptaland): Það er oft ansi heitt í kolunum innan sem utan vallar þegar þessi lið mætast. Síðast var það fyrir luktum dyrum. Ef þú vilt öruggt umhverfi er ekki ráðlagt að mæta á þessa viðureign.
9. Dortmund - Schalke (Þýskaland): Það hefur skapast magnað andrúmsloft þegar þessi tvö lið kljást. Stuðningsmenn beggja liða þagna ekki. Ódýrt á völlinn og fólk með bjór í hönd.
8. Lazio - Roma (Ítalía): Það er alvöru innlifun þegar Rómarslagurinn fer fram þó oft sé ekki mikið í húfi nema stoltið. Andrúmsloftið á það til að vera nokkuð óhugnalegt en viðureign þessara liða var flautuð af vegna slagsmála í stúkunni 2004.
7. Gremio - Internacional (Brasilía): Vikuna fyrir þennan leik er ekki talað um neitt annað í Rio Grande do Sul. Risar í brasilískum fótbolta.
6. Fenerbahce - Galatasaray (Tyrkland): Spennan í loftinu er ólýsanleg. Ekki annað hægt en að taka þátt af hjarta og sál. Könnun sem var gerð 2011 leiddi í ljós að 35% Tyrkja styðja Galatasaray en 34% Fenerbahce.
5. Celtic - Rangers (Skotland): Leiðinlegt að þessi lið séu ekki í sömu deild. Sögulega séð er þessi grannaslagur í einu orði sagt rosalegur.
4. Liverpool - Man Utd (England): Tvö af vinsælustu fótboltafélögum í heiminum. Leikur sem ótrúlega margir bíða spenntir eftir... mætast næst 14. desember!
3. Nacional - Penarol (Úrúgvæ): Öll úrúgvæska þjóðin stendur á öndinni þegar þessi lið eigast við. Það er alltaf stappað á leikjunum og stemningin sturluð.
2. Real Madrid - Barcelona (Spánn): Augu heimsins eru á leikjum þessara liða. Talað hefur verið um að peningarnir hafi tekið yfir en sagan er til staðar.
Athugasemdir