Steve McClaren, stjóri Newcastle, lét nokkra leikmenn liðsins fá það óþvegið á æfingu á mánudag.
McClaren tók fyrirliðann Fabricio Coloccini sérstaklega fyrir og gagnrýndi frammistöðu hans á tímabilinu harðlega.
Newcastle er í 17. sæti í ensku úrvalsdeildinni en á æfingunni á mánudag sakaði McClaren nokkra leikmenn liðsins um að leggja sig ekki nægilega vel fram fyrir félagið.

Úr varð rifrildi við leikmenn sem hélt áfram eftir æfingu og inn í líkamsræktarsal þar sem leikmenn fóru að taka á því.
McClaren tók við Newcastle í sumar en hann er allt annað en ánægður með byrjunina á tímabilinu.
Athugasemdir