Frakklandsmeistarar Paris St-Germain eiga fjóra leikmenn í úrvalsliði vikunnar í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa slátrað Malmö 5-0. Dáðasti sonur Svía, Zlatan Ibrahimovic, nær ekki að komast í liðið eftir frækna heimkomu. Arsenal og Chelsea eiga sinn fulltrúa. BBC valdi liðið.
Markvörður - Fernando Muslera (Galatasaray): Var í yfirvinnu í 2-0 tapi gegn Atletico Madrid. Spænska liðið átti 24 skot í leiknum!
Varnarmaður - Gregory van der Wiel (Paris St-Germain): Hollendingurinn átti góðan leik fyrir PSG sem hefur aðeins fengið eitt mark á sig í fimm leikjum í Meistaradeildinni.
Varnarmaður - Gary Cahill (Chelsea): Bláliðar unnu Maccabi Tel Aviv 4-0 en ísraelska liðið náði aðeins tveimur markskotum.
Miðjumaður - Angel di Maria (Paris St-Germain): Finnur sig betur með hverjum leiknum hjá PSG og skoraði tvö í Málmey.
Miðjumaður - Lars Stindl (Borussia Mönchengladbach): Skoraði tvívegis í 4-2 sigri gegn Sevilla. Þýska liðið á þó ekki möguleika á að komast áfram.
Miðjumaður - Mesut Özil (Arsenal): Hjálpaði Arsenal að halda sér í færi. Skoraði fyrsta markið í 3-0 sigri gegn Dinamo Zagreb. Besti leikmaður Arsenal á tímabilinu.
Framherji - Cristiano Ronaldo (Real Madrid): Skoraði tvö í 4-3 sigri gegn Shaktar Donetsk. Er með 68 mörk í 68 Meistaradeildarleikjum.
Athugasemdir