Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. nóvember 2015 11:30
Magnús Már Einarsson
Reynir Haraldsson í HK (Staðfest)
Reynir Haraldsson.
Reynir Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
HK hefur fengið vinstri bakvörðinn Reyni Haraldsson á láni frá Fylki en hann er kominn með leikheimild með Kópavogsliðinu.

Hinn tvítugi Reynir er uppalinn hjá ÍR en hann gekk til liðs við Fylki fyrir ári síðan.

Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Reyni í sumar en hann kom ekki við sögu hjá Fylki í Pepsi-deildinni.

Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi HK síðan Reynir Leósson tók við liðinu af Þorvaldi Örlygssyni í haust.

Auk Reynis hafa Jóhannes Karl Guðjónsson, Hákon Ingi Jónsson, Ingimar Elí Hlynsson, Fannar Freyr Gíslason, Hinrik Atli Smárason, Teitur Pétursson og Viktor Smári Segatta gengið til liðs við félagið undanfarnar vikur.
Athugasemdir
banner
banner