Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 26. desember 2014 19:38
Elvar Geir Magnússon
Championship: Úlfarnir færast nær umspilssæti
Dicko í baráttu við Sebastien Bassong í leiknum í dag.
Dicko í baráttu við Sebastien Bassong í leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
Watford 0 - 1 Wolves
0-1 Nouha Dicko ('57 )

Wolverhampton Wanderers vann nauman útisigur gegn Watford í lokaleik dagsins í ensku B-deildinni.

Malímaðurinn Nouha Dicko skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik en Wolves var betra liðið í fyrri hálfleik án þess að ná að skora.

Í lokin var Watford nálægt því að jafna, þá skaut Odion Ighalo í tréverkið.

Watford er í sjötta sætinu, síðasta umspilssætinu, fjórum stigum á undan Wolves sem er í níunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner