Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 26. desember 2014 20:24
Magnús Már Einarsson
Heskey: Eiður sá eini sem hefði séð hlaupið hjá mér
Heskey stimplaði sig inn í dag.
Heskey stimplaði sig inn í dag.
Mynd: Getty Images
Emile Heskey stimplaði sig inn hjá Bolton Wanderers með marki í sínum fyrsta leik fyrir félagið í dag.

Heskey kom inn á í hálfleik gegn Blackburn Rovers og skoraði fyrra mark liðsins í 2-1 sigri eftir laglega utanfótar sendingu frá Eiði Smára Guðjohnsen.

Þeir félagar eru báðir 36 ára gamlir en Heskey var ánægður með sendinguna hjá Eiði.

,,Enginn annar leikmaður hefði tekið eftir hlaupinu hjá mér í aðdraganda marksins. Eiður Guðjohnsen er gæða leikmaður," sagði Heskey eftir leik.

Sjá einnig:
Sjáðu markið: Eiður lagði upp á Heskey
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner