Neil Lennon, stjóri Bolton, var hæstánægður með þá Eið Smára Guðjohnsen og Emile Heskey eftir 2-1 sigur liðsins gegn Blackburn í Championship deildinni í dag.
Eiður Smári byrjaði leikinn og lagði upp mark fyrir varamanninn Heskey með baneitraðri sendingu, en þetta var fyrsti leikur þess síðarnefnda fyrir Bolton. Eiður Smári var að spila sinn þriðja leik.
Eiður Smári byrjaði leikinn og lagði upp mark fyrir varamanninn Heskey með baneitraðri sendingu, en þetta var fyrsti leikur þess síðarnefnda fyrir Bolton. Eiður Smári var að spila sinn þriðja leik.
,,Í seinni hálfleik vorum við frábærir og það var að stóru leiti Emile Heskey að þakka. Hann var magnaður," sagði Lennon.
,,Margir voru hissa þegar við fengum Emile og Eið Smára í liðið en þeir sýndu í dag hversu öflugir þeir eru. Sendingin hjá Eiði var stórkostleg."
Athugasemdir