Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. desember 2014 21:00
Alexander Freyr Tamimi
Rosicky: Mikilvægt að vera tilbúinn
Tomas Rosicky skoraði í dag.
Tomas Rosicky skoraði í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tomas Rosicky var mættur í byrjunarlið Arsenal í 2-1 sigrinum gegn QPR í ensku úrvalsdeildinni í dag og nýtti tækifærið vel.

Tékkneski landsliðsmaðurinn skoraði annað mark Arsenal og hjálpaði liðinu að landa mikilvægum þremur stigum.

,,Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikurinn minn á tímabilinu og ég vildi sýna stjóranum að hann gæti treyst á mig og notað mig meira," sagði Rosicky.

,,Við gáfum allt sem við gátum og unnum leikinn og það er mjög gott að hafa náð sigri á þessum mikilvæga tímapunkti."

,,Það er alltaf erfitt fyrir leikmenn að fá ekki að spila og svo skyndilega kemur kallið. Þá verður maður að vera tilbúinn, svo ég lagði gríðarlega hart að mér á æfingum."

,,Þetta er einstakur árstími fyrir stuðningsmennina og allur heimurinn horfir á úrvalsdeildina. Þetta er erfiður tími fyrir leikmennina, en maður verður að taka þessu fagnandi."


Athugasemdir
banner
banner
banner