Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 26. desember 2014 22:00
Alexander Freyr Tamimi
United ræður kokk til að kenna Januzaj og Shaw að elda
Shaw þarf að taka sig á í eldhúsinu.
Shaw þarf að taka sig á í eldhúsinu.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur ráðið heimsklassa kokk til að kenna þeim Luke Shaw og Adnan Januzaj að elda.

Samkvæmt The Sun sendir félagið kokk heim til leikmannanna og hann gefur þeim ráð varðandi mataræði og eldamennsku.

,,Sumir af leikmönnum okkar, þar á meðal aðalliðsmenn á borð við Luke Shaw og Adnan Januzaj, eru á unglingsárum og hafa ekki lært að elda," sagði heimildarmaður við The Sun.

,,Þannig við sendum kokk til þeirra til að taka ísskápinn í gegn. Hann útskýrir hverju þarf að henda, hvað er hollt og hvað ekki."

,,Þeir kaupa síðan inn í ísskápinn og búa til hollar uppskriftir. Flestir leikmenn eru með margra milljóna króna eldhúsaðstöðu sem ætti heima á Michelin veitingastöðum, en sumir kunna varla að nota örbylgjuofn."


Hvorki Shaw né Januzaj hafa látið mikið til sín taka á tímabilinu en spurningin er hvort að nýtt og betra mataræði geti breytt því.


Athugasemdir
banner
banner
banner