Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 27. janúar 2015 19:57
Alexander Freyr Tamimi
Afríkumótið: Gana og Alsír áfram
Bentaleb skoraði fyrir Alsír.
Bentaleb skoraði fyrir Alsír.
Mynd: Getty Images
Tveimur leikjum var rétt í þessu að ljúka í Afríkumótinu, en Gana og Alsír tryggðu sig upp úr C riðli og í 8-liða úrslitin rétt í þessu.

Riyad Mahrez og Nabil Bentaleb tryggðu Alsír 2-0 sigur gegn Senegal, en Mahrez skoraði snemma leiks og Bentaleb gulltryggði Norður-Afríkumennina áfram í restina.

Gana kom til baka eftir að hafa lent 1-0 undir gegn Suður Afríku. Á 73. mínútu jafnaði John Boye metin, og Andre Ayew skoraði svo sigurmarkið tíu mínútum síðar.

Gana og Alsír munu mæta þeim liðum sem fara upp úr D-riðli.
Athugasemdir
banner
banner