Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. janúar 2015 23:01
Alexander Freyr Tamimi
Brendan Rodgers: Markvörðurinn vann þetta fyrir þá
Rodgers segir Courtois hafa gert gæfumuninn.
Rodgers segir Courtois hafa gert gæfumuninn.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, gat ekki annað en verið ánægður með sína menn þrátt fyrir 1-0 tap gegn Chelsea í framlengdum undanúrslitaleik deildabikarsins í kvöld.

Rodgers og félagar verða að sætta sig við að horfa á úrslitaleikinn í sjónvarpinu eftir að Branislav Ivanovic tryggði Chelsea sigurinn, en Norður Írinn er þó gríðarlega stoltur af sínum mönnum og vill meina að Thibaut Courtois hafi bjargað Lundúnaliðinu.

,,Leikmennirnir voru frammúrskarandi. Yfir þessa tvo leiki vorum við betra liðið. Við fengum frábær færi en gátum ekki skorað. Ég get ekki verið annað en stoltur því leikmennirnir gáfu allt í þetta," sagði Rodgers.

,,Ef maður greinir þessa tvo leiki, þá var það markvörðurinn þeirra sem vann einvígið fyrir þá. Hann er heimsklassa markvörður."

,,Mér fannst pressan hjá okkur vera mjög, mjög góð. Við sköpuðum færi og ollum þeim vandræðum. En þeir eru heimsklassa lið og mjög erfiðir."

,,Þessi keppni hefur hjálpað okkur að endurheimta okkar einkenni. Nú verðum við bara að halda áfram."

,,Við vorum betri á öllum sviðum en við bara náðum ekki að skora mörkin. Stundum er bara múr fyrir markinu og í kvöld og í síðustu viku var það Courtois."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner