Hjörtur Hermannsson átti fínan leik þegar varalið PSV Eindohven sigraði varalið Twente 4-1 í hollensku B-deildinni í gærkvöldi.
Hinn 19 ára gamli Hjörtur er fastamaður í varaliði PSV Eindhoven.
PSV hefur miklar mætur á Hirti og á dögunum var honum boðinn nýr þriggja ára samningur hjá félaginu. Ólafur Garðarson umboðsmaður hans staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net
Hjörtur hefur ekki ennþá ákveðið hvort hann muni taka samningstilboðinu eða ekki.
Hjörtur var í U21 árs landsliði Íslands í síðustu undankeppni en hann er áfram gjaldgengur í næstu keppni sem byrjar í haust.
Athugasemdir