Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. janúar 2015 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Van Persie: Ég verð að gera betur
Verður að gera betur, skoraði 30 mörk á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu.
Verður að gera betur, skoraði 30 mörk á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu.
Mynd: Getty Images
Robin van Persie, sóknarmaður Manchester United, segist ekki vera viss um hvort honum bjóðist nýr samningur við félagið á næstu mánuðum.

Van Persie er ósáttur með frammistöðu sína á tímabilinu og vill gera betur til að verðskulda nýjan samning við Rauðu djöflana.

,,Þetta veltur ekki á mér, eins og staðan er í dag þá verð ég hér áfram í 18 mánuði," sagði Van Persie.

,,Þannig er raunveruleikinn, ég get ekki séð framtíðina. Ég verð að bíða og sjá hvað gerist.

,,Ég er ekki ánægður með mig á tímabilinu. Ég er búinn að spila um 20 leiki og hef ekki skorað nema 8 mörk sem er ekki nógu gott. Ég verð að gera betur ef ég vil vera áfram hjá Man Utd."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner