Zlatan Ibrahimovic er ekki beint auðmjúkur, og hann minnti alla knattspyrnuáhugamenn heims á það í gær.
Sænski landsliðsmaðurinn gerði sig sekan um ljóta tæklingu undir lok leiksins í 1-0 sigri Paris Saint-Germain gegn St. Etienne í gær og fékk að líta gult spjald.
Paul Baysse, varnarmaður St. Etienne, var ekki sáttur með tæklinguna og kvartaði í Zlatan. Framherjinn brást við með því að segja: „Bíddu, hver ert þú?“ og líta aftan á treyju Baysse til að sjá hvað hann héti.
Baysse tók sig til og svaraði í sömu mynd og virtist Zlatan nokkuð brugðið! Hver veit ekki hver Zlatan er!?
Myndband af þessum skemmtilegu kyndingum má sjá hér að neðan.

Zlatan Ibrahimovic with 'Sorry, who are you... by ankit-sharma1
Athugasemdir