Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   lau 27. janúar 2018 14:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar Páll: Guðjón er að fara að skora meira en Berbatov
Rúnar Páll Sigmundsson.
Rúnar Páll Sigmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón er farinn til Indlands.
Guðjón er farinn til Indlands.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Það er flott, þetta var ágætis leikur. Ég er ánægur með frammistöðuna," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir 4-1 sigur gegn ÍBV í Fótbolta.net mótinu í dag. Ljóst er að Stjarnan mun spila til úrslita í mótinu eftir sigurinn.

„Það er alltaf gott að vinna leiki, við leggjum mikla áherslu að vinna þessa leiki og gera þetta vel."

Aðspurður segist Rúnar frekar sáttur með hópinn sem hann er með í höndunum á þessari stundu.

„Við erum með mjög góðan hóp og við metum það bara þegar á líður hvort við þurfum að styrkja eitthvað."

Guðjón Baldvinsson er farinn til Indlands þar sem hann samdi við Kerala Blasters. David James er þar þjálfari og Hermann Hreiðarsson aðstoðarþjálfari. Guðjón verður þar fram í mars.

„Þetta er fínt tækifæri fyrir Guðjón og spennandi. Þetta er mjög áhugavert fyrir hann," segir Rúnar.

„Ef eitthver myndi fýla þetta þá er það Guðjón."

Í Indlandi mun Guðjón spila við hlið Dimitar Berbatov í fremstu víglínu. Rúnar telur að Guðjón muni skora meira en Berbatov.

„Það verður geggjað hjá honum (að spila með Berbatov). Þetta er mjög mikið ævintýri fyrir hann. Guðjón er allan daginn að fara að skora meira, það þarf bara að gefa á hann," sagði Rúnar léttur.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner